Súperform

Vilt þú meira?

Þetta er átaksnámskeið fyrir KONUR OG KARLA sem vilja fá mikið aðhald, auka við sig styrk og þol og eru tilbúin að svitna vel.

Gott fyrir fólk sem eru í ágætu formi og sem hafa verið á hefðbundnum kvenna og karla átaksnámskeiðum áður en vilja aðeins meira.

Fjölbreyttar æfingar, sviti og gleði og mikill eftirbruni því æfingarnar byggja á intervalæfingum/skorpuþjálfun sem skilar toppárangri.

Fræðsla, fyrirlestrar og aðhald til að auka sjálfstraust, vellíðan og gleði.

Hentar fyrir:

Konur og karla í ágætu formi

Hentar síður:

Konum/körlum í mikilli ofþyngd

Konum/körlum sem eru algjörir byrjendur

Innifalið í Súperformsnámskeiðum er:

  • Lokaðir hóptímar 2 sinnum í viku
  • Mjög mikið aðhald þar sem fylgst er vel með mætingum
  • Vikulegir tölvupóstar frá kennara með hvatningu og heilsuráðum
  • Vigtun reglulega
  • Ummálsmáling í byrjun og lok námskeiðs
  • Þolpróf í upphafi og lok námskeiðs
  • Ástandspróf í upphafi og lok námskeiðs
  • Þolprógram sem á að gera 2 sinnum í viku sem byggir á lotuþjálfun/intervalþjálfun.
  • Vönduð fræðsla send rafrænt. Fullt af fróðleik um mataræði, markmið, þjálfun og fleira
  • Tími hjá þjálfara í sal sem útbýr æfingaáætlun sem hentar þér og kemur þér af stað í tækjasal samhliða námskeiðinu
  • Aðgangur að öllum opnum tímum á öllum stöðvum World Class
  • Aðgangur að öllum 9 stöðvum World Class
  • Aðgangur að Lágafelsslaug, sundlaug Seltjarnarness og Laugardalslaug

 

Laugar

Mánudaga og miðvikudaga kl 17:30 í sal 3
Kennari er Bára Daðadóttir þolfimikennari

Mánudaga og miðvikudaga kl 06:10 í sal 4
Kennari er Berglind Ósk Ólafsdóttir þolfimikennari

 

Mosfellsbær

Mánudaga og miðvikudaga kl 18:30
Kennari er Sigrún Björg Ingvarsdóttir þolfimikennari og einkaþjálfari

Þriðjudaga og fimmtudaga kl 06:10
Kennari er Árndís Hulda Óskarsdóttir þolfimikennari og íþróttafræðinemi

Spöng

Mánudaga og miðvikudaga kl 16:30
Kennari er Íris Huld Guðmundsdóttir íþróttafræðingur og stöðvastjóri World Class í Spöng

Þriðjudaga og fimmtudaga kl 06:10
Kennari er Íris Huld Guðmundsdóttir íþróttafræðingur og stöðvastjóri World Class í Spöng

Ögurhvarf

Þriðjudaga og fimmtudaga kl 06:10
Kennari er Helgi Þorvaldsson

Kringlan

Þriðjudagar og fimmtudagar kl 07:00
Kennari er Dagmar Hrund Sigurleifsdóttir sjúkraþjálfunarnemi

Seltjarnarnes

Mánudagar og miðvikudagar kl 06:10
Kennari er Edda Hermannsdóttir þolfimikennari

Verð 15.900 kr

Korthafar með ótímabundin samning greiða lægra gjald eða 7.170 kr
Korthafar með tímabundin samning fá framlengingu á kortinu sem nemur tímalengd námskeiðsins

Ummæli þátttakenda:

Ég byrjaði á 3*5 námskeiði í Spönginni, frábært námskeið með hressum og hvetjandi kennara.

Í beinu framhaldi fór ég á námskeiðið Súperform, það sem ýtti virkilega við mér var að Íris, hressi og hvetjandi kennarinn var einnig með það námskeið. Ég hafði nokkuð góðar væntingar til námskeiðsins Súperform, námskeiðið fór hins vegar fram úr mínum björtustu væntingum, frábært í alla staði. Hress og hvetjandi kennari, góðir strengir á nýjum og nýjum stöðum, frábærar æfingar undir góðri hvetjandi tónlist og ekki má gleyma góðum hópi sem alltaf mætti hress í morgunsárið. Þetta allt var nóg til þess að ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um þegar skráningar hófust á nýtt súperform námskeið.

- Dagný Arnþórsdóttir


Ég mæli með Súperform námskeiðinu í Spöng. Ég ákvað að prófa eitt námskeið en er nú búin að fara á fjögur og ná ótrúlegum árangri. Það er erfitt að fá leið á þessu þar sem engir tveir tímar eru eins. Þetta er eins og að vera í einkaþjálfun þó við séum í hóp.

- Guðrún Kalrsdóttir


Súperform námskeiðið er eitt það besta sem ég hef farið á,æfingarnar er mjög fjölbreyttar og alltaf stuð í tímum.

Ekki skemmir það fyrir að hún Björk Varðardóttir er auðvitað snillingur og maður veit aldrei hverju maður á að eiga von á í tímunum, snú,snú,reipitog,eltingaleik,spilaleik,setjast á blöðrur,myndartaka já hún er alltaf með eitthvað nýtt og það skemmtilega er að maður fer alltaf brosandi út, því við höfum öll gott af því að hreyfa okkur og líka að fara aðeins út fyrir þægindarammann.

Það geta allir tekið þátt í þessu námskeiði og tekið það á sínu tempói.
Andinn í Ögurhvarfi er frábær og það er alltaf tekið vel á móti þér.

- Linda Björk


Superform námskeiðið er frábært fyrir alla og sérstaklega þá sem æfa reglulega, bæði til að koma sér út úr þægindahringnum og til að ná meiri árangri. Í mínu tilviki er það nauðsynlegt að fá meiri árangur/gæði úr þeim tíma sem ég ver við æfingar í World Class og þar kemur svona námskeið að miklu gagni. Bæði skemmtilegt og árangursríkt með frábærum kennara sem er algjört lykilatriði.

- Guðmundur Gunnarsson


Sigrún Björg er alveg með‘etta í súperforminu í Mosó! Mig hlakkar alltaf til að mæta í hvern tíma, sem er frábær tilfinning og reyndar alveg nýtt fyrir mér.

Andrea Jónsdóttir


Súperform námskeiðið á Seltjarnarnesi bauð upp á afbragðs blöndu af úthalds- og styrktaræfingum, sem voru í senn fjölbreyttar, líflegar, og krefjandi. Frábær kennari og úrvals félagsskapur leiddi til mjög hvetjandi andrúmslofts, sem gerði það að verkum að ég hlakkaði til að mæta í hvern einasta tíma (jafnvel kl. 6:10 á mánudagsmorgnum!). Enda lét árangurinn ekki á sér standa, aukakílóin fuku burt á sama tíma og úthaldið og styrkurinn jókst jafnt og þétt. Mæli hiklaust með þessu námskeiði fyrir konur og karla á öllum aldri sem vilja komast í enn betra form. Fimm stjörnur plús!

Yngvi Björnsson

Ég er búin að mæta í Súperform í Spöng frá janúar 2011 og get ekki hugsað mér að hætta, námskeiðin eru virkilega vel upp byggð, þú ert alltaf að gera eitthvað nýtt, þú ert útkeyrð eftir hvern tíma og hún Íris er snillingur að ná því mesta út úr þér.  Ég er búin að bæta minn lífsstíl algerlega á þessu ári, búin að léttast um 15 kg þannig að ég er að detta í kjörþyngd og bæta þol og þrek ótrúlega mikið.

Ég er  búin að skrá mig í frábæra áskorun og setja mér markmið um að hlaupa hálft maraþon í Amsterdam í október nk. Það er ekki síst vegna hvatningar frá Írisi um að við getum allt og aldrei að gefast upp. Hjá Írisi eru heldur ekki þessar óraunsæju öfgar í mataræði, bara þessi náttúrulögmál hreyfa sig meira og borða rétt og minna.

Íris er frábær

Birna Kristín

 

Var að klára  frábært súperformsnámskeið hjá Eddu Hermannsdóttur í WOrld Class á Seltjarnarnesi.

Frábært námskeið og frábær kennari

Ólöf Hanna Gunnarsdóttir


Næstu námskeið auglýst síðar. Fylgstu með hér á síðunni.

Kennarar

Engin grein fannst.