Peak pilates
Námskeiðið byggist á styrktar-, teygju og öndunaræfingum. Ávinningur af Peak Pilates er m.a. flatari, tónaðri og sterkari kviðvöðvar, lengri og ávalari vöðvar, betri líkamsbeiting, þróaðri vöðvastjórnun og aukið blóðflæði og streitulosun ásamt því að styrkja sogæðakerfið. Þetta er námskeið sem hentar öllum og er sérstaklega gott fyrir þá sem þurfa að styrkja kvið og bakvöðva. Frábært æfingakerfi sem virkar vel fyrir bæði kynin.
Peak Pilates er það vinsælasta í heiminum í dag. Þetta æfingakerfi stunda margar af stærstu stjörnunum vegna þess hve vel æfingarnar ná að móta miðju líkamans, þ.e.a.s. kviðvöðvana og minnkar þar með stórlega hættu á bakverkjum og öðrum álagskvillum. Ekki spillir fyrir hversu vaxtamótandi áhrif æfingakerfið hefur fyrir allan líkamann. Peak Pilates æfingar eru einnig notaðar í bland við aðrar æfingar í opnum hóptímum sem heita Kviður og bak.
Mikilvægt er að þátttakendur láti kennara ávallt vita ef þeir glíma við stoðkerfisvanda, hjartasjúkdóma eða aðra kvilla sem gætu haft áhrif á framistöðu í tímum.
Innifalið í Peak pilates námskeiðum er:
- Lokaðir hóptímar 2 sinnum í viku
- Mjög mikið aðhald þar sem fylgst er vel með mætingum
- Tími hjá þjálfara í sal sem útbýr æfingaáætlun sem hentar þér og kemur þér af stað í tækjasal
- Aðgangur að öllum stöðvum World Class auk sundlauga
- Aðgangur að öllum opnum tímum í World Class
4 vikna námskeið:
Verð kr. 13.500 / Meðlimir World Class greiða kr. 7.413
Kennt er í Laugum
þriðjudaga / fimmtudaga kl. 18:35 í sal 4
Kennari er Þórunn Sævarsdóttir hjúkrunarfræðingur, Peak Pilates og þolfimikennari.
Fjöldi er takmarkaður við 25 manns
