Mömmutímar
World Class býður upp á 6 vikna námskeið fyrir nýbakaðar mæður. Námskeiðið er ætlað mæðrum með börn frá 6 vikna aldri og eins lengi og móðirin kærir sig um. Seinna er svo hægt að nýta sér barnagæslu World Class, Sprotaland, þegar þess er óskað, en þar er ekkert aldurstakmark.
Markmið með námskeiðinu er að aðstoða móðurina að koma líkamanum í eðlilegt horf eftir meðgöngu og fæðingu. Áhersla er lögð á kviðæfingar, grindarbotnsæfingar, almenna styrktarþjálfun, stöðuleikaþjálfun fyrir bak og mjaðmagrind, rétta líkamsstöðu, liðkandi æfingar og fræðslu. Börnin eru með í tímanum og gera æfingar með móður sinni.
Námskeiðið kostar aðeins 21.900 krónur og er aðgangur að öllum stöðvum World Class innifalinn.
Skráning á www.worldclass.is eða í síma 553-0000.
Kennari er Sandra Dögg Árnadóttir sjúkraþjálfari og 3ja barna móðir.
Innifalið í Mömmunámskeiðum er:
- Lokaðir hóptímar 2 sinnum í viku
- Mjög mikið aðhald þar sem fylgst er vel með mætingum
- Tímni hjá þjálfara í sal sem útbýr æfingaáætlun sem hentar þér og kemur þér af stað í tækjasal samhliða námskeiðinu
- Aðgangur að öllum stöðvum World Class auk sundlauga
- Aðgangur að öllum opnum tímum í World Class
Korthafar með ótímabundin samning greiða lægra gjald
Korthafar með tímabundin samning fá framlengingu á kortinu sem nemur tímalengd námskeiðsins
