Lífstíll 20+
World Class í Spöng býður upp á 6 vikna úrvalsnámskeið fyrir konur sem eru í yfirvigt og þurfa að missa amk 20 kg af heilsufarsástæðum
Æfingavalið tekur tillit til líkamsþyngdar en lögð er áhersla á markmið, hvatningu, mælingar, uppskriftir og fjölbreyttar æfingar.
Kennari: Tinna Arnardóttir einkaþjálfari sem hefur persónulega reynslu af því að glíma við þyngdarvandamál og hefur náð að halda sér í kjörþyngd. Tinna er kraftmikill þjálfari með góða reynslu og veit hvað þarf til að ná árangri.
Kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl 18:30 og á laugardögum kl 09.
Hentar eingöngu konum í mikilli yfirþyngd
Verðlaun veitt fyrir ástundun, árangur og jákvæðni í lok námskeiðs
Innifalið í Lífstíl 20 + námskeiðum er:
- Lokaðir hóptímar 3 sinnum í viku
- Heimaverkefni
- Mjög mikið aðhald þar sem fylgst er vel með mætingum
- Vikulegir tölvupóstar frá kennara með hvatningu, uppskriftum og heilsuráðum
- Vigtun reglulega
- Ummálsmæling í byrjun og lok námskeiðs
- Þolpróf í upphafi og lok námskeiðs
- Ástandspróf í upphafi og lok námskeiðs
- Vönduð fræðsla send rafrænt. Fullt af fróðleik um mataræði, markmið, þjálfun og fleira
- Tími hjá þjálfara í sal sem útbýr æfingaáætlun sem hentar viðkomandi og kemur fólki af stað í tækjasal samhliða námskeiðinu
- Aðgangur að öllum opnum tímum
- Aðgangur að öllum stöðvum World Class
Ég ákvað að skella mér á "enn eitt" námskeiðið og hafði satt best að segja engar væntingar til þess. Námskeiðið fór fram úr mínum björtustu væntingum og þá aðallega til sjálfrar mín. Fjölbreytni tímanna og hvatning Tinnu varð til þess að áhuginn, krafturinn og ánægjan jókst með hverjum tíma og eftir að hafa mætt á 3 námskeið er hreyfing aftur orðin að daglegum viðburði hjá mér. En ég var orðin sófakótiletta með meiru, alltaf þreytt og orkulaus.
Tímarnir voru alveg frábærir, vel skipulagðir og fjölbreyttir og kom því aldrei upp leiði á rútínunni. Tinna sem sjálf hefur reynslu af baráttu sinni við aukakílóin er framúrskarandi kennari með brennandi áhuga og hvetur mann áfram í tíma og ótíma. Sú staðreynd að hún hefur sjálf átt í þessari baráttu gerir hana trúverðugri sem kennara fyrir hóp sem okkar. Hópurinn sjálfur var síðan alveg frábær, það myndaðist góður mórall og góð samkennd á milli okkar sem er ómetanlegt :)
Ég mæli með þessum tímum við alla, það verður enginn svikinn af því að fara til Tinnu og njóta hennar leiðsagnar : )
- Harpa Valdimarsdóttir
Eftir hvatningarorð góðrar vinkonu ákvað ég að taka sjálfa mig taki og fara á eitt námskeiðið enn. Ég var í raun búin að vera í frekar óvirku átaki í langan tíma sem hafði ekki skilað mér neinu. Ég valdi Lífstíl 20 + því ekki langaði mig að vera í sal með konum sem þurftu að losna við 2-3 kg og bæta þolið. Ég er stór kona með talsvert hold og þurfti að koma mér í form.
Til að gera langa sögu stutta þá fann ég drauma staðinn minn. Ég hitti frábærar, stórar og stoltar konur 3svar í viku, við púluðum og styrktumst undir stjórn hennar Tinnu, sem fagnaði með okkur hverju skrefi sem við náðum í átt til betra lífs.
Við fáum góðar leiðbeiningar um mataræði, æfingar eru aðlagaðar ef um meiðsli eru að ræða eða verki. Reglulega fáum við sendir póstar með hvatningu, heilsuráðum og uppskriftum. Matardagbók, markmiðssetningar og þolpróf í upphafi og enda námskeiðs taka af allan vafa um árangur.
Mér finnst alveg frábært að vera með leiðbeinanda sem hefur sjálf átt við offituvandamál að stríða, hún veit hvað þetta krefst af hverri og einni. Á þessu námskeið lærði ég að það er ekki ein leið, heldur margar til að öðlast betra og heilsusamlegra líf. Maður verður bara að tileinka sér leiðina sem hentar manni sjálfum og halda sér þar..Ég er enn að hreyfa mig, borða hollari mat og sé kílóunum fækka. En það besta er snerpan, þolið og styrkurinn hjálpar mér að líta heiminn og framtíðina bjartari augum.
- Kær kveðja Magga 4tug bjútiíbolla
Verð 21.900
Korthafar með ótímabundin samning greiða lægra gjaldKorthafar með tímabundin samning fá framlengingu á kortinu sem nemur tímalengd námskeiðsins
