Ketilbjöllur
World Class býður upp á 6 vikna námskeið í ketilbjöllum undir styrkri handleiðslu Helga Þorvaldssonar ketilbjöllusérfræðings
Boðið verður upp námskeið í World Class í Kringlunni
Ketilbjöllur
- Kennt er 2* í viku; mánudaga og miðvikudaga kl 18:30 Þetta námskeið er fyrir alla
- Verð:15.900 kr
- Korthafar með ótímabundin samning greiða lægra gjald
- Korthafar með tímabundin samning fá framlengingu á kortinu sem nemur tímalengd námskeiðsins
Innifalið í kettlebellsnámskeiðum er:
- lokaðir hóptímar 2 sinnum í viku
- mjög mikið aðhald þar sem fylgst er vel með mætingum
- Vönduð fræðsla um mataræði, markmið, þjálfun og fleira
- tími hjá þjálfara í sal sem útbýr æfingaáætlun sem hentar þér og kemur þér af stað í tækjasal samhliða námskeiðinu
- Aðgangur að öllum opnum tímum á öllum stöðvum World Class
- Aðgangur að öllum 9 stöðvum World Class
- Aðgangur að Lágafelsslaug, sundlaug Seltjarnarness og Laugardalslaug
Hvað eru Kettlebells?
Ketilbjöllur eru æfingatækni sem byggir á gamalli hefð frá landbúnaðarhéruðum Rússlands. Þar notuðu menn vogarlóð sem svipaði til teketils í laginu við þyngdarmælingar á korni og öðru slíku (þaðan kemur nafnið Kettlebells). Þegar bændurnir voru ekki að vinna notuðu þeir lóðin til að prófa styrk sinn og smátt og smátt fóru þeir að keppa innbyrðis, staðla æfingarnar og búa til æfingaprógrömm með bjöllunum. Í dag eru bjöllur aðallega notaðar til líkamsræktar en þó eru enn margir sem keppa í formlegum keppnisgreinum með bjöllur. Æfingarnar byggjast allar á náttúrulegum hreyfingum, þær byggja upp; kraft, liðleika, þol, jafnvægi og eru í raun alhliða líkamsrækt. Með ketilbjöllum dregur maður fleiri vöðva líkamans inn í æfingarnar og gefa þess vegna gífurlega góða og krefjandi þjálfun. Þegar þú æfir á þann hátt að þú lætur vöðvana vinna sem ein heild, örvar þú taugakerfið og eykur samhæfingu vöðvanna og uppskeran er styrkur og úthald sem gagnast þér í öllum aðstæðum þ.e. hagnýtur styrkur! Ef þú ert tilbúinn að leggja mikið á þig verða launin ríkuleg, aukinn styrkur, mun meira úthald, betri líkamsvitund, betri líkamsstaða. Bjöllurnar eru misþungar og er alltaf hægt að gera margar útgáfur af öllum æfingum, bæði léttari og erfiðari. Þetta æfingakerfi er fyrir bæði stráka og stelpur á öllum aldri.
