Insanity
Í INSANITY eru framkvæmd töluvert af hoppum og unnið er með álagsþjálfun í krefjandi sprengikraftslotum. Álagið er því mikið á alla liði líkamans. Námskeiðið er fyrir þá sem vilja taka rækilega á því og sjá skjótan árangur. Við viljum taka það fram að námskeiðið er fyrir alla viðskiptavini sem eru tilbúnir að komast í sitt allra besta líkamlega formi og taka þjálfunina skrefinu lengra.
INSANITY er alhliða þjálfun sem byggir á þolþjálfun og kraftþjálfun, Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem eru í góðu líkamlegu formi.
INSANITY eru tímar fyrir alla þá sem vilja komast í gott form STRAX.
INSANITY eykur súrefnisupptöku, þol, styrk & ákveðni. Gerðar eru styrktar, kraft og þolæfingar í mislöngum lotum en í lotuþjálfun skiptast á lotur með hárri ákefð og lotur með lægri ákefð eða hvíld. Unnið er með jafnt með styrkar- og þolþjálfun.
INSANITY er:
- Þrekæfingar
- Mikil brennsla
- Aukinn styrkur
- Aukið þol
- Mikið aðhald
- Hópefli og gleði!
Ef þú gerir allt sem þú átt að gera, þá kemur SIXPACKinn!
Innifalið á námskeiði:
- 3 fastir hópatímar á viku í 6 vikur.
- Fjölbreyttir skemmtilegir tímar.
- Árangursrík og vönduð þjálfun
- Fróðleikur um mataræði og fleira
- Þolpróf í upphaf og lok námskeið
- Vigtun reglulega
- Ummálsmáling í byrjun og lok námskeiðs
- Mikil skemmtun, góð fræðsla og aðhald
6 vikna námskeið verð kr. 22.900 / Meðlimir World Class greiða kr. 13.770
Insanity eru hreint út sagt snilldartímar sem virkilega virka til þess að minnka ummálið allsstaðar. Kílóin fjúka burt á ótrúlega stuttum tíma. Hörkupúltímar, mikill hraði, einfaldar og krefjandi æfingar, þolið og styrkur eykst gífurlega og svitinn perlar af manni. Áhrifaríkar æfingar, góð mússík og frábær kennari. Ég mæli hiklaust með þessum tímum fyrir bæði konur og karla á öllum aldri, byrjendur og lengra komna.
Berglind Hafsteinsdóttir
Frábært námskeið, frábær félagsskapur og góður árangur. Skemmtilegir og fjölbreyttir tímar sem gaman er að mæta í.
Ása Valdís Árnadóttir
