Hlaupanámskeið fyrir byrjendur í Mosfellsbæ og Laugum
ÞAÐ ER ALDREI OF SEINT AÐ BYRJA AÐ HREYFA SIG!
Ert þú ein/n af þeim sem ert alltaf á leiðinni að byrja á því að hlaupa reglulega? Ef svo er þá er hlaupanámskeið fyrir byrjendur hópur fyrir þig. Fyrsta hindrunin sem þú þarf að yfirstíga er að taka ákvörðun um að hlaupa út í lífið og koma þér af stað. Það er engin vafi á því að regluleg hreyfing er fjárfesting til heilsu. Ekki halda að allir séu örugglega betri en þú. Passaðu þig á því að vera ekki alltaf að segja við sjálfan þig: „ég get þetta ekki, þetta gengur aldrei, ég hef aldrei getað þetta“. Útrýmdu þessum þankagangi úr huga þínum ef hann er til staðar og komdu og vertu með okkur. Það á að vera gaman og ánægjulegt að hlaupa, svo verður þetta smá saman vani og loks getur þú ekki án þess verið. Það jafnast í rauninni ekkert á við það að ganga og hlaupa úti á víðavangi. Allt súrefnið fyllir mann orku og vellíðan sem ekki er hægt að fá með því að vera innandyra og heldur manni í formi og hver vill það ekki?
Allir fá æfingaáætlun sem hægt er að fylgja utan fastra tíma. Mæting er í andyri World Class í Lágafellslaug eða í Laugum nema annað sé tekið fram. Lögð verður áhersla á að fara 3 til 6 km í hvert sinn, hlaupandi eða hlaupandi og gangandi á víxl auk styrktaræfinga. Einnig verður farið yfir helstu atriði varðandi hlaup og útbúnað, mataræði og annað slíkt.
