Fitness Box

Hvar: World Class Kringlunni
Kennari: Ari Þór Ársælsson

Góð leið til þess að koma sér í gott form á skömmum tíma og hafa gaman af því í leiðinni. Gríðarleg fitubrennsla og úthaldsþjálfun sem svíkur engann. Það sem þú leggur í æfinguna færð þú út úr æfingunni.   Allir tímar fara fram undir handleiðslu þjálfara. Ari Þór  kennir tímana og byggir þá á 23 ára reynlsu í hnefaleikum þar sem hann hefur kennt í mörg ár og sjálfur keppt 41 sinni og státar meðal annars  af silfri á sænska meistaramótinu og hefur unnið gull á nokkrum stærstu mótunum í Svíþjóð.

Mikið um styrktaræfingar og einnig verður komið inn á tæknina svo sem standa rétt, slá rétt og allar æfingar gerðar rétt. Því getur námskeiðið einnig reynst gott fyrir þá sem vilja læra sjálfsvörn.  Sem sagt ef þú hefur áhuga á að styrkja þig, auka úthald þitt, losa þig við aukakílóin eða bara hafa gaman af því að taka á því er fitnessbox málið.

Mikilvægt er að þátttakendur láti kennara ávalt vita ef þeir glíma við stoðkerfisvanda, hjartasjúkdóma eða aðra kvilla sem gætu haft áhrif á framistöðu í tímum. 

Innifalið í Fitnessboxnámskeiðum er:

  • Lokaðir hóptímar 3 sinnum í viku í 6 vikur
  • Mjög mikið aðhald þar sem fylgst er vel með mætingum
  • Tími hjá þjálfara í sal sem útbýr æfingaáætlun sem hentar þér og kemur þér af stað í tækjasal
  • Aðgangur að öllum opnum tímum á öllum stöðvum World Class
  • Aðgangur að öllum 10 stöðvum World Class
  • Aðgangur að Lágafelsslaug, sundlaug Seltjarnarness og Laugardalslaug

Kennt á:

þriðjudögum og fimmtudögum kl18:30 og laugardögum kl. 12  

Verð til korthafa hjá World Class kr. 13.170 (fullt verð kr. 21.900)


Næstu námskeið auglýst síðar. Fylgstu með hér á síðunni.