Fitness Form
Vilt þú komast í fitnessform? Móta og tóna líkamann?
Fitness Form er sex vikna fitnessnámskeið fyrir konur sem vilja kynnast því hvað þarf til að komast í frábært form, kynnast því hvernig er að keppa í fitnesskeppnum,fá mikið aðhald, auka við sig styrk og þol og eru tilbúnar að svitna vel.
Fjölbreyttar æfingar, sviti og gleði og mikill eftirbruni því æfingarnar byggja á styrkaræfingum og intervalæfingum/skorpuþjálfun sem skilar toppárangri.
Fræðsla og aðhald til að auka sjálfstraust, vellíðan og gleði.
Hentar fyrir:
Konur sem vilja komast í gott form og prófa eitthvað nýtt
Hentar síður:
Konum í mikilli ofþyngd
Konum sem eru algjörir byrjendur
Innifalið í Fitnessformsnámskeiðum er:
- Lokaðir hóptímar 3 sinnum í viku
- Mjög mikið aðhald þar sem fylgst er vel með mætingum
- Vikulegir tölvupóstar frá kennara með hvatningu og heilsuráðum
- Vigtun reglulega
- Ummálsmáling í byrjun og lok námskeiðs
- Ástandspróf í upphafi og lok námskeiðs
- Styrktarprógram sem á að gera 2 sinnum í viku sem byggir á lotuþjálfun/intervalþjálfun.
- Fullt af fróðleik um mataræði, markmið, þjálfun og fleira
- Verðlaun fyrir besta árangurinn og bestu mætinguna
- Aðgangur að öllum opnum tímum á öllum stöðvum World Class
- Aðgangur að öllum 9 stöðvum World Class
- Aðgangur að Lágafelsslaug, sundlaug Seltjarnarness og Laugardalslaug
Kennarar
Kristbjörg Jónasdóttir einkaþjálfari,þolfimikennari og WBFF Pro fitnesskeppandi
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir einkaþjálfari og fitnesskeppandi
Báðar eru þær margverðlaunaðar fitnesskonur heima og erlendis
