Eldri aldurshópar 50+
Eldri aldurshópar 50+
Líkams- og heilsurækt hjá Janusi í World Class
Með hækkandi aldri eykst hreyfiskerðing, líkur á beinþynningu aukast – sérstaklega hjá konum, hjarta- og æðasjúkdómar gera vart við sig, líkamsþyngd eykst og vöðvarýrnun verður um 3% á ári eftir 70 ára aldur. Þessar breytingar geta skert lífsgæði og ýtt undir ótímabæra stofnanavist. Þú getur spyrnt á móti öllum þessum breytingum með markvissri þjálfun. Við aðstoðum þig!
Þrjú sex vikna námskeið
|
10. janúar – 17. febrúar |
21. febrúar – 30. mars |
10. apríl – 18. ma |
|
Þriðjudagar og föstudagar Laugar: 08:30 og 09:30 Hafnarfirði: 07:00 |
Þriðjudagar og föstudagar Laugar: 08:30 og 09:30 Hafnarfirði: 07:00 |
Þriðjudagar og föstudagar Laugar: 08:30 og 09:30 Hafnarfirði: 07:00 |
Skráning er hafin í afgreiðslu World Class fyrir ný námskeið ætluð eldri aldurshópum. Yngri þátttakendur einnig velkomnir. Umsjón hefur Janus Guðlaugsson íþróttafræðingur. Þátttaka er miðuð við 8–10 iðkendur í hverjum hópi. Þjálfunin fer fram í World Class Laugum og World Class í Hafnarfirði.
Fastir þjálfunartímar verða tvisvar sinnum í viku, á þriðjudögum og föstudögum, um 60 mínútur í hvert skipti. Í Laugum kl. 08:30 og 09:30 en í Hafnarfirði kl. 07:00. Aðra vikudaga fylgja þátttakendur sérstakri þjálfunaráætlun upp á eigin spýtur. Farið verður yfir fyrirkomulag þjálfunar í fyrsta þjálfunartíma.
Fáðu fræðslu hjá fagaðilum hvernig þú átt að byggja upp eigin þjálfun, auka hreysti þitt og þrek en um leið að draga úr ótímabærum öldrunareinkennum með markvissri líkams- og heilsurækt.
Kostnaður: 19.900 fyrir hvert námskeið – 11.170 fyrir korthafa.Innifalinn aðgangur í allar 10 stöðvar World Class og 3 sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu.
Námskeiðstími: 6 vikur hvert námskeið
Umsjón og þjálfun: Janus Guðlaugsson
Fyrir hönd fagaðila og starfsfólks í World-Class
Janus Guðlaugsson, íþróttafræðingur
Gígja Þórðardóttir, deildarstjóri kennara, námskeiða og þjálfara
