Dans 16-19 ára
Tímarnir í þessum aldursflokki eru hraðir og krefjandi. Hér eykst flækjustig hreyfigetu og tækni enn frekar. Mismunandi dansstílar eru kenndar af kennara á tímabilinu og enn ítarlegra er farið í skilning nemenda á líkamanum og líkamsbeitingu. Mikið er lagt upp úr að nemendur átti sig á vöðvakerfinu og hvernig gott skynbragð á líkamann er dönsurum til framdráttar. Markmiðið með tímanum er að nemendur nái að þroskast hratt og þróa sinn stíl, auk þess að finna sinn persónulega stíl.
