Dans 13-15 ára
Tímarnir byggjast á vandaðri danskennslu. Mikið er lagt upp úr því að nemendur kynnist fleiri en einni hlið á dansinum og því læra nemendur mismunandi dansstíla í tímum. Einnig er lög mikil áhersla á túlkun, leikræna tjáningu og framkomu. Þegar hingað er komið eru leiðbeiningar frá kennara nákvæmari varðandi líkamsbeitingu og túlkun. Nemendur læra bæði götudansa sem krefjast oftar en ekki stórra hreyfinga sem reyna á stóru vöðvana og aðra dansstíla, t.d. jazz, sem krefjast fínni hreyfinga og notkun minni vöðva í líkamanum.
