Dans 10-12 ára
Tímarnir byggjast upp á grunnþjálfun þar sem öll undirstöðuatriði í styrk- og liðleikaþjálfun eru kennd ásamt góðri tækni, túlkun og sköpun. Hér er farið í flóknari tækniæfingar og bætt ofan á þær æfingar sem nemendur læra í yngri flokki. Dansstílum eru gerð betri skil þegar hingað er komið með það að markmiði að nemendur öðlist skilning á mismunandi tækni og hreyfingum.
