Core X
CoreX var hannað af Alex McKechnie sjúkraþjálfara og Athletic performance coordinator hjá Los Angeles Lakers. CoreX er mikið notað af styrktar-, ástands- og sjúkraþjálfurum liða í NBA deildinni. Það hefur einnig verið mikið af knattspyrnumönnum (t.d. Manchester City), tennisleikurum, leikmönnum í amerískum fótbolta og blakspilurum.
Með CoreX er hægt að framkvæma starfrænar hreyfingar sem líkja eftir hreyfingum í íþróttum, hreyfingu og daglegum störfum. Þegar CoreX er notað þá virkjast kviðvöðvar, bakvöðvar og grindarbotnsvöðvar (core) tengir þannig efri og neðri útlimina betur saman svo að kraftarnir skila sér í gegn. Þannig fáum við meira út úr „power-house“, eins og „core“ er oft kallaður.
Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur. Farið er yfir grunnstöður og grunnhreyfingar og eftir því sem líður á verða æfingarnar flóknari og erfiðari. Námskeiðið hentar fyrir þá sem eru virkir í hreyfingu, æfa keppnisíþróttir, hafa verið með vandamál í baki en eru komnir af stað í hreyfingu og alla þá sem vilja læra skemmtilegar og árangursríkar æfingar.
Kennari á námskeiðinu er Valgeir Viðarsson sjúkraþjálfari B.Sc. hjá ATLAS endurhæfingu, valgeir@atlasendurhaefing.is
Valgeir er einnig sjúkraþjálfari hjá handknattleiksdeild Vals, hann hefur komið að sjúkraþjálfun hjá U-21 knattspyrnulandslið Íslands. Að auki hefur hann farið í heimsóknir og kynnt sér meðhöndlun leikmanna hjá Bolton Wanderers og New York Knicks.
Sjá nánar á www.corex.is og www.corexsystem.com
Hér má sjá stutta kyningu á Core X.
