Core Pilates
Core pilates er æfingarform þar sem áhersla er lögð á miðju eða “core” líkamans og stoðkerfi hans.
Í æfingunum er aðallega notast við stóran æfingarbolta sem þjálfar djúpvöðva, jafnvægi og líkamsstöðu en einnig er notast við handlóð og æfingateygjur.
Æfingarnar eru styrkjandi og liðkandi, bæta líkamanlegt þrek og andlegan líðan.
Pilates æfingarkerfið er þekkt fyrir að gefa langa og fallega vöðva, flatari kviðvöðva, grennri læri og sterkara bak. Hentar vel þeim sem eiga við bakvandamál að stríða.
Kennari er Hera Rut Hólmarsdóttir , hún er lærður Fit-pilates kennari og stundar nám við sjúkraþjálfun.
Innifalið í Core Fit námskeiðum er:
- Lokaðir hóptímar 2 sinnum í viku
- Mjög mikið aðhald þar sem fylgst er vel með mætingum
- Tími hjá þjálfara í sal sem útbýr æfingaáætlun sem hentar þér og kemur þér af stað í tækjasal samhliða námskeiðinu
- Aðgangur að öllum opnum tímum á öllum stöðvum World Class
- Aðgangur að öllum 10 stöðvum World Class
- Aðgangur að Lágafelsslaug, sundlaug Seltjarnarness og Laugardalslaug
Verð kr. 19.900 / Meðlimir World Class greiða kr. 11.212
Kennt í Laugum
Þriðjudaga og fimmtudaga kl 06:30 Kennari : Hera Hólmarsdóttir sjúkraþjálfunarnemi og einkaþjálfari
Ummæli um námskeiðið:
Core Pilates er eitthvað sem allir þurfa að prófa. Skemmtilegar og góðar æfingar sem henta öllum vel. Hera er frábær kennari, hún stendur sig vel með að leiðbeina nemendum í gegnum æfingarnar og fylgist með hvort líkamsstaðan sé rétt í æfingunum. Þú finnur mun á þér eftir hvern einasta tíma og færð harðsperrur á stöðum þar sem þú bjóst ekki við að geta fengið harðsperrur.
- Ellen Björg
