Barnadansar 4-6 ára
Tímarnir byggjast upp á grunnþjálfun þar sem öll undirstöðuatriði í styrk- og liðleikaþjálfun eru kennd ásamt góðri tækni, túlkun og sköpun. Um er að ræða vandaða kennslu sem hentar getu og þroska nemenda. Áhersla er lögð á skemmtanagildi í tímum í bland við aga.
