3x5 Súperátak
Þú mætir fimm sinnum í viku og kemst í þitt besta form á þrem vikum.
Mataræðið tekið í gegn, mikið aðhald, sérhannað og árangursríkt æfingakerfi sem skilar árangri, aukinni brennslu og vellíðan á líkama og sál.
Tímarnir eru fyrir konur og karla.
Æft er 5 sinnum í viku
Leikfimitímar 3 x í viku
- Engin flókin spor
- Lotuþjálfun með/án lóða
- Fjölbreytt styrktarþjálfun
- Góð slökun og teygjur á föstudögum (hina dagana líka en extra góð á föstudögum)
Tækjasalstímar 2 x í viku
- Lotuþjálfun á þoltækjum
- Kvið- og bakæfingar
Matarprógram frá næringarfræðingi
- Góð ráð
- Hvað á að borða dags daglega?
Stuðst er við æfingakerfi frá Bandaríkjunum þar sem eru gerðar svo kallaðar lotuæfingar eða interval æfingar en þær stuðla að góðum árangri vegna þess að brennslan á æfingunni og ekki síður EFTIR æfinguna er mikil og hafa rannsóknir sýnt fram á að slíkar æfingar geta hækkað grunnbrennslu líkamans sem er það sem flestir sækjast eftir.
Þrisvar í viku eru tímarnir í leikfimissal undir handleiðslu kennara og þá eru gerðar ýmsar styrktaræfingar með og án mótstöðu, fjölbreyttar þolæfingar en engin flókin spor. Hina 2 daga vikunnar á að mæta í tækjasal með þjálfara og þá er unnið á þoltækjunum í þessu skorpuæfingaformi en kennararnir leiðbeina hverjum og einum um hvað er best fyrir þeirra líkamsástand.
Þessi námskeið eiga að henta öllum því sá sem er í ágætis líkamsástandi getur gert oftar, hraðar og þyngra og sá sem er byrjandi gerir hægar, sjaldnar og með léttari lóð.
Kennarar veita aðhald, fylgjast með mætingum og hjálpa til við að finna leiðir sem henta hverjum og einum til árangurs.
Við bjóðum upp á matarprógram og gefum góð ráð til þess að koma sér vel af stað í bættu mataræði.
Frábær leið til þess að koma sér af stað eftir veturinn og mæta ferskur inn í sumarið
Vertu með því þú átt það skilið.
Ummæli þátttakenda:
Ég hafði ekki haft mig af stað í ræktina í heilt ár. Þegar ég frétti þessu dúndurátaksnámskeiði ákvað ég að minn tími væri kominn. Námskeiðið fór fram úr mínum björtustu vonum! Björk er snillingur og rífur fólk með sér. Það sem mér fannst sérstaklega gott er að þetta er mikið átak en þó töluverð fjölbreyttni og hvatningin í tímunum er þess eðlis að þú getur ekki annað en farið alla leið og gott betur. Rúsínan í pylsuendanum er svo að ég sé stóran mun á líkamanum eftir þessar „stuttu“ 3 vikur! Mér finnst áberandi gott andrúmsloft í stöðinni í Ögurhvarfi þar er öllum heilsað með brosi og kvaddir með kveðju og brosi á vör, svona á að byrja daginn
-Katrín B. Eyjólfsdóttir , 44 ára.
Ég er 51 árs og hef verið reglulega í líkamsrækt í mörg ár, en vantaði að lyfta mér uppúr farinu sem ég var í og langaði til að létta mig. Þegar vinkona mín hringdi og spurði hvort við ættum ekki að prufa þetta þá sló ég til.
Björk er alveg frábær kennari, hún veit alveg hvað hún er að gera, fylgist vel með að fólk geri æfingarnar rétt. Engir tveir tímar eru eins, alltaf eitthvað nýtt. Hún blandar mjög fagmannlega saman þol- og styrktaræfingum og mér hefur aldrei liðið eins vel líkamlega eins og núna eftir þessar þrjár vikur. Tímarnir eru mjög fjörugir og maður kemst í banastuð fljótlega uppúr kl. 6 á morgnanna
Ég fylgdi matardagbókinni, sem Björk sendi, í stórum dráttum, þó ekki alveg, en það dugði til að ég missti 2,9 kg. á þremur vikum og sentimetrarnir fuku. Ég mæli algerlega með þessu námskeiði fyrir þá sem vilja koma sér í gott form á stuttum tíma.
-Heiðrún
