Eru hollar skyndilausnir að blekkja þig?
Hollt líferni getur flækst fyrir mörgum í dag þökk sé framsæknum matariðnaði sem hvetur okkur að neyta meira en nauðsyn er. Öll þessi flóknu nöfn innihaldslýsinga bak við matvæli geta ruglað okkur í ríminu. Sem heilsumarkþjálfi veit ég að orð eins og „fituskert”, „trefjaríkt” og „ ávaxtaþykkni” getur blekkt okkur öll í að halda því fram að við séum að kaupa hið heilsusamlegasta sem völ er á.
Jafnvel í hinum heilsusamlegustu verslunum leynast sykurbúnar skyndilausnir dulbúnar sem það besta fyrir heilsu þína. Til að gefa þér betri skilning á þessu þá skal ég gefa þér einfalt dæmi um innihald sykurs í hollum skyndilausnum eða óhollu.
Í hinni hollu skyndilausn gætum við keypt okkur vítamín vatn eða vitamin water og prótein súkkulaði stykki. Í einni flösku af vítamín vatni ert þú að neyta 8 teskeiðar af sykri. En hvað með prótein stykkið? Í 44 gr stk sem jafngildir stærð hreysti próteinsúkkulaðis ert þú að neyta rúm 3 teskeiðar af sykri.
Ef við skoðum nú samanburðinn á því sem okkur er kennt að halda okkur frá. Tökum coke og snickers sem dæmi. Í 250 ml flösku af coke flösku, sambærileg stærð af vítamín vatni erum við að neyta 11 teskeiðar af sykri. Ef við skoðum þá snickers, eitt snickers stykki er 62,5 gr. Ef við reiknum nú hlutföllin rétt og gerum ráð fyrir að snickers stykkið sé jafnstórt og prótein stykkið sem við tókum sem dæmi, þá í 44 gr snickers stykki erum við að neyta 6 teseiðar af sykri.
Þetta getur einmitt flækst fyrir mörgum í dag. Í annríki dagsins gefst hreinlega ekki tíma til að skoða bak hverja vöru fyrir sig í leit að hinu heilsusamlegasta og matariðnaðurinn gerir það í þokkabót ómögulegt með mismunandi heitum á sykri og öðrum aukaefnum sem við skiljum ekki. Á fyrirlestri mínum „getur sykur leitt þig í fitugildru“ miðvikudaginn næstkomandi þann 13. Júní kl: 20:00 í World Class Laugum, mun ég gefa þér hollráð sem eiga við annríka líferni þitt hér á Íslandi svo þú getir lært að gera betri skil á milli hvað sé hollt og hvað ekki og að öllu jafnaði sigrast á sykurlöngunum þínar fyrir fullt og allt!
Ég hvet þig til að koma og hlusta eftir þinni uppljómun sem gæti varanlega breytt viðhorfi þínu og lífsháttum gagnvart neyslu sykurs.
Vegna vinsælda og fyrirspurna frá fyrirlestri mínum „ Aukin orka með ofurfæði -7 helstu ofurfæði og 7 lífstílsþætti fyrir aukna orku“ Hef ég skrifað um þessi 7 helstu ofurfæði sem mér þýkir hvað best fyrir aukna orku, öfluga virkni og lífsþrótt inná www.lifdutilfulls.com. Þar getur þú lesið þig til um fæði sem samanstendur of kröftugustu, næringarríkustu fæðum í heimi.
Júlía Magnúsdóttir
Heilsumarkþjálfi
www.lifdutilfulls.com
facebook.com/lifdutilfulls

