Ástfangin alla ævi?
Flest höfum við gaman af tilvitnunum eða heilræðum því yfirleitt snerta þær okkur með einum eða öðrum hætti. Flestar tilvitnanir, sem hafa varðveist, eru eftir fræga einstaklinga en inn á milli hittir meðaljóninn naglann á höfuðið. Í meðfylgjandi tilvitnunum eru sannleikskorn – jafnvel staðreyndir.
Vert umhugsunar
- Gagnrýni birtist sem fjögurra dálka forsíðufrétt. Hrós kemur í lokuðu umslagi, merkt prívat.
- Fólk þekkir ekki takmörk málfrelsis fyrr en það hefur farið yfir mörkin.
- Þú ert orðinn miðaldra þegar þú hugsar meira um hve lengi bíllinn mun endast en hve hratt hann kemst.
- Að vera iðinn er ekki nóg, það eru maurarnir líka. Spurningin er; við hvað ertu iðinn?
- Rógur er eins og falskir peningar. Pent fólk myndi aldrei búa þá til en ausir þeim engu að síður út án samviskubits.
- Þær skemmtanir sem maður er orðinn of gamall fyrir kallar maður vitleysur.
- Maður ætti alltaf að vera ástfanginn og þess vegna ætti enginn að gifta sig.
- Það er leyfilegt að elska 2 hunda, 5 börn og 10 fiska en ef maður elskar tvær konur verður allt vitlaust.
- Karlmaðurinn er félagslegt vandamál en náttúruleg nauðsyn.
- Sá sem hefur báða fætur á jörðinni stendur kyrr.
- Í hvert sinn sem þú lánar vini þínum peninga skaðar þú minni hans.
- Guð á sálina, jörðin líkamann, ættingjar fjármunina og heimurinn mannorðið.
- Því þröngsýnni sem maðurinn er, því stærri yfirlýsingar gefur hann.
- Þú getur komist hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert.
- Stórar sálir hafa vilja, veikar sálir eiga sér óskir.
- Stýrðu hugsunum þínum, tilfinningum þínum og þú ákveður örlög þín.
- Þrautseigja er grundvallaratriði velgengninnar.
- Ef þú bankar nógu lengi og nógu hátt, hlýturðu að lokum að vekja einhvern.
- Þeir gömlu trúa öllu, hina miðaldra grunar allt en hinir ungu vita allt.
- Fólk sem brennir sig kann ekki að leika sér að eldinum.
Þorgrímur Þráinsson

