Gott að fá spark í rassinn
Flestir sem byrja að stunda líkamsrækt vita ekki hvernig gera á æfingarnar og vantar leiðsögn til að ná
árangri. Þá er mjög gott að fá sér einkaþjálfara til að byrja á réttum grunni frá fyrsta degi,“ segir Hrafnhildur Hákonardóttir, yfirmaður einkaþjálfunar í World Class. Sjálf þurfti hún að glíma við meiðsl í stoðkerfi eftir umferðarslys og fann sína leið í gegnum líkamsrækt.
Hvatningin góð
„Ég hef alltaf verið viðloðandi íþróttir og keppti í vaxtarrækt hér fyrr á árum. Í dag er hreyfingin ekki bara holl og góð fyrir mig, heldur lífsnauðsynleg því að hún dregur úr einkennum sem ég finn fyrir í kjölfar slyssins.“
Hún segir hópinn sem nýtir sér einka- þjálfun í World Class gríðarlega fjölbreyttan og það sama eigi við um þann hóp einkaþjálfara sem eru til taks fyrir áhugasama. „Hingað kemur fjölbreyttur hópur af báðum kynjum alls staðar að úr þjóðfélaginu og með mjög misjafnar þarfir. Þess vegna er mikilvægt að hægt sé að mæta þörfum allra,“ segir Hrafnhildur og útskýrir nánar: „Sumir þjálfaranna henta vel fyrir fólk sem leggur stund á langhlaup, aðrir fyrir fólk með bakverki, enn aðrir hafa reynslu af fólki með einhverja fötlun og svo mætti lengi telja. Hér er alltaf einhver þjálfari sem hentar.“
Hún segir fólk oft í vafa um hvernig eigi að velja einkaþjálfara og hringi þá til að spyrja ráða. Oft er hægt að leiðbeina fólki ef það er með sérstakar óskir en síðan segist Hrafnhildur einnig hvetja fólk til að mæta og bara fylgjast með inni í sal. „Ef þú sérð viðskiptavin sem er ánægður með þjálfarann sinn er það góðs viti því við erum jafn misjöfn og við erum mörg og það er gott að finna einhvern sem maður finnur ein- hvern samhljóm með eða hefur mögulega reynslu af því sem mann langar að leggja áherslu á,“ segir Hrafnhildur sem segir þó flesta einkaþjálfarana eiga eitt sameiginlegt. „Okkur finnst öllum gaman að sparka í rassinn á fólki,“ segir hún hlæjandi og heldur áfram: „Það er alltaf gott að vera með aðhald og einhvern utanaðkomandi sem hvetur mann áfram. Margir eiga erfitt með að sinna þessu reglubundið, finnst erfitt að koma sér á staðinn, finnst leiðinlegt að æfa og þar fram eftir götunum. En þetta er svo nauðsynlegt og þá er um að gera að finna sér leið til að gera þetta skemmtilegt og ekki spillir fyrir ef það kemur yfir fólk smá keppnisandi.“
Besta geðlyfið
Hinn almenni borgari nútímans kannast vel við kvillana stress og vöðvabólgu og hinar ýmsu afleiðingar hreyfingarleysis. Þetta fólk vill Hrafnhildur meira en endilega fá til sín. „Þótt ég vilji ekki gera upp á milli viðskiptavinanna minna, finnst mér alltaf skemmtilegast að fá fólk sem er orkulítið. Það er svo gaman að lyfta fólki upp úr sleninu og hjálpa því til heilbrigðara lífs. Að sjá breytingarnar sem geta orðið á fólki þegar það síðan kemur hingað beint í baki, með glænýja útgeilsun eftir að það er byrjað að hreyfa sig – það er ómetanlegt. Þetta er það besta við starfið, að hjálpa fólki að ná betri líðan sem síðan vonandi smitar frá sér út í heiminn; það eru mikil verðlaun,“ segir Hrafnhildur ánægð og segir frá annars konar verðlaunum sem hún notar á sitt fólk. „Áskorun er alltaf af hinu góða og það sést vel að um leið og fólk er komið með markmið og kannski farið að keppa örlítið innbyrðis, verður þetta skemmtilegt og það nennir frekar að mæta og síðan er alltaf gott að vera með verðlaun fyrir góðan árangur,“ segir hún brosandi.
Í World Class koma oft tveir eða þrír saman til einkaþjálfara því það er bæði aðhald í félagsskapnum og svo er það líka ódýrara. Sumir velta þá upp þeirri spurningu hvort einkaþjálfun sé ekki dýr og svo framvegis, en svar Hrafnhildar við því er að heilsan sé grundvöllur að öllu okkar lífi, eins og við vitum, og auk þess sé fólk oft að kaupa sér dýr jakkaföt, draktir, fara fínt út að borða og slíkt sem kostar mikið, og þá sé spurning hvernig maður vilji forgangsraða. „Hreyfingin er svo mikilvæg. Maður kemur þarna inn alveg hrikalega pirraður, hreyfir á sér skrokkinn og getur ekki beðið eftir að komast í sturtu. Síðan er maður orðinn gjörsamlega ný manneskja. Þetta er ekki flóknara en svo; hreyfing eykur gleðina og lífsorkuna og þetta er besta geðlyfið.
Sjá nánar: Einkaþjálfarar World Class
Greinin birtist í Fréttatímanum 30. september 2011

