Góð heilsa er gulli betri – hreyfing er fyrir alla!

25.10.2011

Reglubundin hreyfing er ávallt mikilvæg hvort sem einstaklingur er ófatlaður eða með fötlun; þroskahömlun, geðfötlun eða líkamlega fötlun.
Líkamsrækt fólks með fötlun var í áranna rás mjög sértæk, svolítið falin líka og fólst kannski að mestu í göngutúrum og sjúkraþjálfun. Þess ber að gera að sértæk þjálfun er enn til staðar í dag og er hennar virkilega þörf á ákveðnum sviðum.
Í dag myndu margir telja að aðstæður í samfélaginu séu aðrar og viðhorf til fatlaðs fólks hafi breyst mikið. Það er þó enn langt í land hvað varðar jafnan rétt til almenns aðgengis í samfélaginu.

Offita er eitt af helstu heilsufarsvandamálum í Evrópu og fer ört vaxandi á Íslandi. Einstaklingar með fötlun glíma að sjálfsögðu líka við ofþyngd eins og aðrir en það sem skilur þá frá öðrum er oftar en ekki takmarkað aðgengi að fræðslu um hreyfingu og hollt mataræði.

Þegar litið er til ávinninga reglubundinnar hreyfingar þá eru þeir bæði líkamlegir og andlegir. Það hefur góð áhrif að koma blóðflæðinu af stað, virkja vöðvana, liðka liðamót og reyna á kerfi líkamans. Það hefur einnig góð áhrif á heilastarfsemi og boðefnaflæði að stunda líkamsrækt en flestir finna fyrir meiri orku, léttari lund, bættum svefn og almennt bættu hreysti. Það sama á við um fólk með fötlun og það er oft á tíðum mikilvægara fyrir einstaklinga sem hafa takmarkaða hreyfigetu að stunda reglulega hreyfingu.
Félagslegir ávinningar mega ekki gleymast í þessum pistli þar sem sá hluti skiptir kannski hvað mestu máli fyrir fólk með fötlun. Það að stunda reglubundna hreyfingu með aðstoð og jafnvel í hópi annarra stuðlar að aukinni félagslegri færni. Það hefur því ákveðið félagslegt gildi fyrir einstaklinga með fötlun og þá sér í lagi einstaklinga með þroskahömlun, að stunda hreyfingu og heilsurækt á almennum líkamsræktarstöðvum.

Fjölmargir einstaklingar með fötlun sækja stöðvar World Class á hverjum degi í sama tilgangi og allir aðrir. Tilgangurinn er að hreyfa sig, hitta félagana, sýna sig og sjá aðra. Flestir hafa fengið góða kynningu á því hvað er að sækja líkamsræktarstöð, hafa fengið og fá góða aðstoð kennara og þjálfara við að stunda sína heilsurækt á sínum forsendum.

Ég leyfi mér að fullyrða að allir vilji heilbrigða sál í hraustum líkama. Ég leyfi mér líka að fullyrða að það vilja allir bæta lífsgæði sín og lifa lífinu til fulls. Allir geta stundað hreyfingu á sínum forsendum, líka fólk með fötlun.

Lýk þessum pistli með orðum einstaklings sem sækir heilsunámskeið fyrir fólk með þroskahömlun í World Class Laugum.

Ég kem í ræktina til að hreyfa mig, til að hitta gott fólk og geislandi þjálfara.   
Ég verð glaðari maður



Birna Markúsdóttir
Þroskaþjálfi, jógakennari og ÍAK einkaþjálfaranemi


Fróðleikur eftir mánuðum



Heilsurækt


Leita á vefnum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica