Flest höfum við gaman af tilvitnunum eða heilræðum því yfirleitt snerta þær okkur með einum eða öðrum hætti. Flestar tilvitnanir, sem hafa varðveist, eru eftir fræga einstaklinga en inn á milli hittir meðaljóninn naglann á höfuðið. Í meðfylgjandi tilvitnunum eru sannleikskorn – jafnvel staðreyndir.
Hvernig stendur á því að þegar streitutímabil verða í lífi fólks, t.d. í formi próftarna og undirbúnings hátíðahalda eins og jóla að þá dragi fólk stórlega úr markvissri hreyfingu? Einmitt á þeim tíma þar sem það þyrfti svo á því að halda líkamlega jafnt og andlega.