Flest höfum við gaman af tilvitnunum eða heilræðum því yfirleitt snerta þær okkur með einum eða öðrum hætti. Flestar tilvitnanir, sem hafa varðveist, eru eftir fræga einstaklinga en inn á milli hittir meðaljóninn naglann á höfuðið. Í meðfylgjandi tilvitnunum eru sannleikskorn – jafnvel staðreyndir.
Hvernig stendur á því að þegar streitutímabil verða í lífi fólks, t.d. í formi próftarna og undirbúnings hátíðahalda eins og jóla að þá dragi fólk stórlega úr markvissri hreyfingu? Einmitt á þeim tíma þar sem það þyrfti svo á því að halda líkamlega jafnt og andlega.
Flestir sem byrja að stunda líkamsrækt vita ekki hvernig gera á æfingarnar og vantar leiðsögn til að ná árangri. Þá er mjög gott að fá sér einkaþjálfara til að byrja á réttum grunni frá fyrsta degi,“ segir Hrafnhildur Hákonardóttir, yfirmaður einkaþjálfunarí World Class.
Reglubundin hreyfing er ávallt mikilvæg hvort sem einstaklingur er ófatlaður eða með fötlun; þroskahömlun, geðfötlun eða líkamlega fötlun. Líkamsrækt fólks með fötlun var í áranna rás mjög sértæk, svolítið falin líka og fólst kannski að mestu í göngutúrum og sjúkraþjálfun.
Staðreyndin er hins vegar sú að ekkert fæst með töfralausnum og ekkert fæst ókeypis. Það er eitt af því fyrsta sem fólk áttar sig á þegar það stundar jóga reglulega. Lykilorðið hérna er: reglulega. Því einn og einn jógatími á nokkurra vikna fresti gera ekki endilega gæfumuninn. Regluleg ástundun ætti að vera fyrsta markmiðið, þó auðvitað sé alltaf betra að gera eitthvað heldur en ekki neitt!
Tabata er lotuþjálfun þar sem hver lota er 4 mínútur. Hverri lotu er svo skipt upp í 8 sett af 20 sekúndna keyrslu og 10 sekúndna hvíld. Til eru ýmsar útgáfur af því hvernig hverri lotu er skipt upp í Tabata-tímunum. Stundum er sama æfingin keyrð í gegn þessar 4 mínútur eða tvær jafnvel þrjár æfingar gerðar á þessum 4 mínútum.
Körfuboltaþjálfari nokkur skipti liðinu sínu upp í þrjá hópa og lét alla leikmennina taka vítaskot. Hann mældi vítahittni hvers hóps, skráði allt hjá sér og sagðist ætla að gera tilraun með leikmönnunum til að sýna fram á mikilvægi hugarþjálfunar.
Lífið er ein samfellt rútína og ávani. Við gerum sömu hluti aftur og aftur, hvort sem okkur líkar betur eða og verr en oftar en ekki viljum við brjóta okkur leið út úr viðjum vanans.
Rithöfundurinn Oscar Wilde, sem lést í París árið 1900, sagði: ,,Ég get staðist allt nema freistingar!“
Allir kannast við það að falla fyrir freistingum, jafnvel daglega því þær blasa við okkur hvert sem litið er. Við fáum okkur kaffi á kaffihúsi en crossantið er líka svaklega freistandi.