Kennarar

Um kennara dansskólans

Kennarar dansskólans eru þaulreyndir þjálfarar og dansarar með gífurlega reynslu að baki á hinum ýmsu sviðum dansíþróttarinnar. Þessi reynsla þeirra spannar fimleika, samkvæmisdans, break, jazz ballet, ballet, samtímadans og ýmsa þjálfun tengda ofantöldum greinum. Einnig hafa kennarar stundað dansnám og sótt námskeið á erlendri grundu, þ.e. í Los Angeles og New York í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Bretlandi, Danmörk, Finnlandi og á Spáni.

Dansstúdíó World Class kappkostar við að halda kennarateymi sínu ungu og fersku. Reynsla þeirra er víðtæk og því kynnast nemendur í tímum. Hver þeirra býr yfir sérþekkingu á ákveðnu sviði dansgeirans en eru jafnframt vel að sér í mörgum öðrum dansstílum. Dansari verður aldrei fjölbreyttari en þeir tímar sem hann hefur sótt.

Kennarar hafa komið fram í hinum ýmsu söngleikjum, auglýsingum, myndböndum og viðburðum auk hina ýmsu uppákoma í sjónvarpi.   

Kennarar Dansstúdíó World Class hafa m.a. unnið með:
The Charlies
Friðrik Dór
Haffi Haff
Páll Óskar
Áramótaskaupinu
Eurovision
Latibær