Byrjum 17. janúar
Dans fyrir allar stelpur/konur sem hafa áhuga á dansi.
Tímar byggðir á fjölbreyttum dansstílum, þ.e. jazz, hip hop, jazz funk, broadway og nútímadansi. Stílum er oftar en ekki blandað saman eða sérstök áhersla er lögð á hvern stíl á ákveðnum tímapunkti. Mikil áhersla er lögð á hámarksbrennslu og skemmtanagildi er í hávegum haft.
Kennari er Stella Rósenkranz, dansar, danshöfundur og jafnramt deildarstjóri dansskólans.
Það er enginn sem segir að þú þurfir að hætta að dansa þegar þú hefur náð tvítugsaldri. Þessir tímar hafa verið hvað fjölmennastir frá árinu 2007 og ný andlit bætast með hverju árinu í hópinn. Frábær stemmning er í þessum tímum og ófá vinasambönd hafa myndast meðal nemenda hópsins.
Frítt líkamsræktarkort fylgir við skráningu.
Tímar eru kenndir á þriðjudögum og fimmtudögum kl.20.35-21.35 í Laugum.
Sviti, brennsla, góð tónlist og frábær félagsskapur. Komdu og vertu með!
