Frístundarkort

Samstarfsaðili að Frístundarkorti ÍTR

Dansstúdíó World Class er aðili að Frístundarkorti Reykjavíkurborgar. Því gefst kostur á að ráðstafa styrknum til niðurgreiðslu á námskeiðsgjaldi.

Styrkurinn er kr. 25.000 á barn á ári en ekki er um beingreiðslur til forráðamanna að ræða, heldur hafa þeir rétt til að ráðstafa tilgreindri upphæð í nafni barns síns til niðurgreiðslu á þátttöku- og æfingagjöldum.

Nemendur úr Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ og Kópavogi geta framvísað greiðslukvittun á bæjarskrifstofum gegn endurgreiðslu hvatapeninga í hverju bæjarfélagi fyrir sig.

Nánari upplýsingar um Frístundarkortin er að finna á eftirfarandi slóð:
http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-3697/6079_view-1524/