Tjarnarbíó
Laugardagurinn 11. febrúar 2012

Dansstúdíó World Class stendur í fyrsta skipti fyrir danskeppni á þessu ári. Þetta er nýjung innan dansskólans og er markmiðið að hvetja nemendur skólans til þess að koma fram á sviði fyrir framan áhorfendur.
Um er að ræða bæði einstaklings- og hópakeppni þar sem keppt er til verðlauna. Keppni er aldursskipt í báðum flokkum. Nemendur sýna frumsaminn dans og sjá alfarið um alla þá þætti sem snúa að því að sýna opinberlega fullbúið dansatriði. Hér er átt við alla umgjörð dansatriðisins, s.s. hugmyndavinnu, tónlist, búningahönnun og að semja dansinn sjálfan. Með þessu móti öðlast nemendur aukinn þroska sem listamenn og dansarar og víkka sjóndeildarhringinn með því að dansa sína eigin sköpun.
Keppnin fer fram laugardaginn 11. febrúar 2012, í Tjarnarbíó á Tjarnargötu.
