Barnadansar 4-6 ára

Verð 12.450 kr. – 13 Vikur

Fyrsti tími í barnadönsum fer fram laugardaginn 21. janúar!

Mikilvægt er að virkja snemma hreyfingar- og sköpunarþörf barna. Það kemur snemma í ljós hjá þeim hvort tónlist og dans sé ríkur þáttur í eðli þeirra. Þess vegna er mikilvægt að bregðast við og rækta þá eiginleika hjá hverju barni.

http://www.worldclass.is/media/ymislegt/pic1dancingkid.jpg

Uppbygging tíma

Tímarnir byggjast aðallega á því að börnin öðlist skilning á takti tónlistar og hreyfingar og samhenginu þar á milli. Farið er yfir einföld spor með kennara og með hverjum tíma er sjóndeildarhringur þeirra víkkaður. Mikið er lagt upp úr styrktar- og liðleikaæfingum svo að börnin nái skjótum árangri. Þessi aldur er svo fljótur að taka við sér og tileinka sér nýja hluti. Skemmtanagildi og leikgleði er mikilvægur þáttur í tímunum og er áhersla lögð á að börnin fái að tjá sína tilfinningu við tónlistina í frjálsum dansi í bland við leiki.

Stór hluti æfinganna er í leikjaformi í þeim tilgangi að ná að halda einbeitingu við æfingarnar. Agi er að sjálfsögðu mikilvægur þáttur í danssal og er rík áhersla lögð á athygli og einbeitingu í bland við gleðina í hverjum tíma.

Þegar líður á veturinn er farið í kennslu á "gömlu barnadönsunum" þ.e. fyrst á réttunni, hókípókí og svo framvegis. Þá fær söngurinn að fljóta með í æfingarnar og æðislegur andi skapast í salnum!

Á síðast liðinni önn voru börnin heimsótt af Íþróttaálfinum og Sollu Stirðu, við frábærar undirtektir. Bros skein úr andliti hvers barns og ríkti mikil gleði á meðal barnanna þann laugardaginn.

Námskeið

Laugar

Laugardagar kl.11.35-12.30
Salur 4

Allar nánari upplýsingar um tímana, greiðslufyrirkomulag, frístundarkort er að finna hér á síðunni.

Skráning er hafin rafrænt hér á heimasíðu World Class, í s. 553 0000 og í afgreiðslu allra World Class stöðva.