World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

Heilsueftirlit World Class

Ef þú vilt fá góðan og mælanlegan árangur er heilsueftirlitið fyrir þig.
Þetta er aðhald hjá þjálfara í mánuð í senn og er fyrir fólk sem vill fylgjast náið með árangri sínum.

Innifalið í heilsueftirlitinu

Fyrsti tíminn er u.þ.b. 60-90 mínútna viðtal ásamt því að

  • farið er yfir markmið þín og heilsuhandbók World Class
  • fitu- og ummálsmælingar eru framkvæmdar og blóðþrýstingur er mældur
  • Tekið er þolpróf
  • sérsniðin æfingaáætlun er búin til og farið er vel yfir tæki í sal sem og stillingar á þeim
  • teygjukennsla fer fram
  • tímatafla fyrir næstu viðtalstíma og mælingar er sett upp
Næstu þrjár vikurnar hittir þú þjálfara þinn í 30 mínútur í hverri viku þar sem farið er yfir vigtun, fitumælingu og æfingaáætlun

Í lokatímanum er svo farið yfir allar mælingar og markmiðasetningar

Að auki færðu
  • tíma hjá næringaráðgjafa okkar
  • heilsuhandbókina okkar Skref fyrir skref og brúsa

Allt þetta kostar einungis 12.500,- á mánuði  


Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe