World Class býður upp á margs konar námskeið á öllum stöðvum sínum.
Námskeiðin standa flest í 6 vikur.
Dæmi um námskeið eru:
NÝTT NÝTT haust 2010 fylgja ÖLLUM námskeiðum okkur tvær 90 mínútna vinnustofur í Dale Carnegie
Mánudaginn 13.september kl:20:00 í Laugum. SETTU ÞÉR MARKMIÐ
Mánudaginn 27.september kl:20:00 í Laugum. STATTU ÞIG
Skráning fer fram á afgreiðslustöðvum World Class og námskeiðsgjald skal greitt við skráningu.
Við leggjum áherslu á gæði og góða þjónustu við viðskiptavini okkar og námskeiðin eru sérsniðin að ákveðnum hópum. Kennararnir leggja mikla áherslu á gott aðhald, fræðslu, gæði æfinga og ekki síst skemmtun.
Það er gríðarlega gaman að vera í góðum hópi undir handleiðslu kennara sem er umhugað um að nemendur nái árangri og hvetur fólk til að setja sér markmið og finnur leiðir til að hjálpa því við að ná þeim.
Öllum námskeiðum fylgir:
- lokaðir hóptímar 2-3 sinnum í viku
- aðgangur að öllum 9 stöðvum World Class og öllum opnum tímum
- mjög mikið aðhald þar sem fylgst er vel með mætingum
- vikulegir tölvupóstar frá kennara með hvatningu og heilsuráðum
- vigtun reglulega
- ástandsmæling í byrjun og lok námskeiðs
- ummálsmáling í byrjun og lok námskeiðs
- vatnsbrúsi
- tími hjá þjálfara í sal sem útbýr æfingaáætlun sem hentar þér og kemur þér af stað í tækjasal samhliða námskeiðinu
Korthafar með ótímabundinn samning greiða lægra gjald
Korthafar með tímabundinn samning fá framlengingu á kortinu sem nemur tímalengd námskeiðsins